spot_img
HomeFréttirMarín Laufey Glímukona ársins

Marín Laufey Glímukona ársins

Glímusamband Íslands hefur útnefnt þau Pétur Eyþórsson og Marín Laufey Davíðsdóttur sem glímufólk ársins. Marín þykir einnig ansi liðtæk á parketinu en hún spilar með Hamri í 1. deild kvenna og hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og síðast með U18 ára liðinu sem tapaði bronsleiknum naumlega á NM gegn Danmörku fyrr á þessu ári.
 
Í tilkynningu frá Glímusambandi Íslands segir meðal annars:
Marín Laufey er 17 ára gömul og átti frábæru gengi að fagna á glímuvellinum árið 2012. Marín sigraði í Íslandsglímunni 2012 og hlaut þar með Freyjumenið í annað sinn. Marín er fyrirmyndar íþróttakona jafnt innan vallar sem utan. 
  
Mynd úr safni/ Marín er nr. 8 á myndinni sem er tekin á Norðurlandamóti U16 og U18 ára landsliða í Svíþjóð þetta árið.
Fréttir
- Auglýsing -