spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaMargrét stígur til hliðar sem þjálfari Breiðabliks

Margrét stígur til hliðar sem þjálfari Breiðabliks

Breiðablik leitar nú af nýjum þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna en Margrét Sturlaugsdóttir hefur óskað eftir því að stíga til hliðar sem þjálfari.

Í tilkynningu frá Breiðablik segir: 

Margrét Sturlaugsdóttir hefur óskað eftir því við félagið að fá að stíga til hliðar sem þjálfari meistaraflokks kvenna.

Ákvörðun þessi er tekin af yfirvegun og í mesta bróðerni. Margrét hefur verið að glíma við erfið veikindi og ætlar nú að huga að heilsunni.

Breiðablik vill þakka Margréti fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og óskar henni alls hins besta í framtíðinni.

Blikar hefja nú leit af þjálfara en samkvæmt tilkynningu er leitin hafin. Næsti leikur Breiðabliks er þann 25. nóvember næstkomandi en landsleikjahlé er í gangi í Dominos deild kvenna þessa dagana.

Fréttir
- Auglýsing -