ÍR lagði Tindastól í kvöld í fyrsta leik átta liða úrslita viðureignar liðanna í fyrstu deild kvenna, 80-66. Þar sem aðeins þarf tvo leiki til að komast áfram í undanúrslitin þarf ÍR því aðeins einn sigurleik í viðbót, en næsti leikur liðanna er komandi sunnudag 16. maí í Síkinu á Sauðárkróki.
Karfan spjallaði við Margréti Blöndal, leikmann ÍR, eftir leik í TM Hellinum. Margrét átti góðan leik fyrir heimakonur í kvöld, skoraði 17 stig, tók 7 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.
Viðtal / Helgi Hrafn