spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaMantas: Hugurinn kominn á réttan stað, en ekki kominn í líkamlegt form

Mantas: Hugurinn kominn á réttan stað, en ekki kominn í líkamlegt form

Liðin í efstu deilum landsins eru á fullu þessa dagana að undirbúa sig fyrir komandi átök. Nokkur fjöldi af æfingaleikjum eru í gangi og er spennandi að sjá hvernig liðin koma undan sumri.

Pétursmótið hófst í dag þar sem fjögur sterk lið taka þátt, þ.e. Njarðvík, KR, Grindavík og Keflavík en mótið er haldið til minningar um Pétur Pétursson. Nokkur haustbragur var á liðum en gaman var að sjá hvernig liðin koma undan sumri.

Liðin sem mætast í fyrstu umferð Dominos deildarinnar Keflavík og Njarðvík mættust í fyrsta leik mótsins. Njarðvík var í bílstjóra sætinu í leiknum og hafði 90-73 sigur gegn Keflvíkingum.

Karfan spjallaði við nýjan leikmann Keflavíkur, Mantas Mockevicius, sem nýlega skrifaði undir samning hjá félaginu eftir að hafa beðið um og fengið að taka þátt á sumaræfingum liðsins. Mantas er 25 ára gamall Lithái sem búsettur er í Keflavík. Eftir að hafa leikið með öllum yngri landsliðum í heimalandi sínu, hætti hann að spila vegna ökklameiðsla fyrir þremur árum, en lék sinn fyrsta leik fyrir Keflavík í kvöld.

 

Fréttir
- Auglýsing -