Mínútu þögn var fyrir alla leiki í ACB deildinni í dag til minningar um Jose Luis Abós fyrrum þjálfara CAI Zaragoza og Jóns Arnórs Stefánssonar síðustu þrjú árin. Jose lést eins og við sögðum frá úr krabbameini í síðustu viku. En Unicaja sem standa í þéttu prógrammi þessa dagana léku í dag við Herbalife Gran Canaría á útivelli. Það tók Unicaja heilar 20 mínútur að komast í gang og í seinni hálfleik silgdu þeir grænklæddu fram úr og sigruðu að lokum 67:74
Jón Arnór lék sínar 17 mínútur í leiknum og setti niður 6 stig. Er enn að reyna að finna fjöl sína fyrir utan þriggja stiga línuna en nýtti öll skot sín innan teigs ásamt tvemiur vítakotum. Unicaja er þar með á toppnum með Barcelona með 4 sigra eftir fjórar umferðir en það eru einnig Real Madrid og Bilbao sem spila sína leiki á morgun.