Undanúrslit Geysisbikarsins 2020 fara fram í dag með tveimur leikjum. Seinni leikur dagsins er milli Stjörnunnar og Tindastóls, bikarmeistara síðustu tveggja ára.
Það eru síðustu tvö nöfnin á bikarnum sem mætast en bikarmeistarar síðasta árs, Stjarnan eru ákveðnir í að endurtaka leikinn. En Skagfirðingar vilja væntanlega endurtaka ævintýri ársins 2018 þegar liðið lyfti titlinum.
Karfan ræddi við Magnús Loga Sigurbjörnsson leikmann Tindastóls á blaðamannafundi fyrir bikarvikuna og má finna við hann í heild sinni hér að neðan:
Leikurinn hefst kl 20:15 og skorum við á alla stuðningsmenn liðanna að mæta. Fyrir þá sem ekki komast er leikurinn sýndur í beinni á Rúv 2.