Línurnar eru heldur betur farnar að skýrast fyrir 16 liða úrslitin í Poweradebikarkeppni karla. Í dag voru sex leikir á dagskránni og fimm þeirra er lokið. Ríkjandi bikarmeistarar Keflavíkur eru komnir áfram eftir 71-77 sigur á KR í DHL-Höllinni þar sem Magnús Þór Gunnarsson hrökk hressilega í gang í síðari hálfleik.
Úrslit 32 liða úrslitanna í dag
KR b 75-73 Breiðablik
KR 71-77 Keflavík
Stjarnan 84-78 Skallagrímur
FSu 80-105 Haukar
Tindastóll 67-82 Snæfell
ÍR
Liðin sem komin eru áfram
Grindavík, Hamar, Augnablik, Valur, Reynir Sandgerði, Haukar b, Þór Þorlákshöfn, Fjölnir, KR b, Keflavík, Stjarnan, Haukar, Snæfell, ÍR. Tvö lið eiga enn eftir að komast áfram.
Mynd/ [email protected] – Magnús Þór Gunnarsson átti fremur dapran fyrri hálfleik en fór hamförum í þeim síðari þar sem hann bombaði niður sjö þristum!