Lykilmaður 18. umferðar Domino's deildar kvenna er Whitney Frazier að mati Karfan.is. Whitney lagði grunninn að mikilvægum sigri Grindavíkur á Keflavík um helgina. Fyrir leikinn voru bæði lið jöfn að stigum og sigurinn skilaði því Grindavík þrepi ofar. Gott veganesti í bikarúrslitin næstu helgi.