Oddur Kristjánsson var langbesti leikmaður ÍR í mikilvægum sigri Breiðhyltinga á bikarmeisturum Stjörnunnar í 4. umferð Domino's deildar karla. Oddur var stigahæstur ÍR-inga með 28 stig að viðbættum 8 stoðsendingum og 5 fráköstum frá þessum knáa bakverði. Karfan.is hefur valið Odd Kristjánsson Lykilmann umferðarinnar.