Karfan.is hefur valið Justin Shouse lykilmann 21. umferðar Domino's deildar karla. Justin átti frábæran leik fyrir Stjörnuna í mikilvægum leik gegn Snæfelli í Stykkishólmi og leiddi liðið með 28 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar. Jafnframt skaut hann 5/7 fyrir utan þriggja stiga línuna og endaði með 38 framlagspunkta eftir leikinn.