spot_img
HomeFréttirLykilmaður umferðarinnar: Helgi Már Magnússon

Lykilmaður umferðarinnar: Helgi Már Magnússon

Helgi Már Magnússon var kannski ekki stigahæstur í sínu liði gegn FSu í síðustu viku, en framlag hans kom á mjög mikilvægum tíma þegar KR vantaði. Tjakkurinn skoraði 27 stig og flest í seinni hálfleik þegar mest á reyndi, tók 9 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Ekki er gert lítið úr ótrúlegri frammistöðu Michael Craion sem skoraði 39 stig og tók 18 fráköst, en Helgi Már Magnússon hefur verið valinn Lykilmaður 10. umferðar Domino's deildar karla.

 

Fréttir
- Auglýsing -