Lykilmaður 14. umferðar Domino's deildar kvenna er að mati Karfan.is Guðbjörg Sverrisdóttir leikmaður Vals. Valur sigraði Grindavík 69-55 á laugardaginn var og skoraði Guðbjörg 25 stig í leiknum. Þar að auki gaf hún 8 stoðsendingar og tók 5 fráköst auk þess sem framlagstuðull hennar var 28 stig í leiknum. Guðbjörg fann fjölina í Valshöllinni þennan dag því hún setti niður 5 þriggja stiga körfur úr 10 tilraunum í leiknum.