Karfan.is hefur útnefnt Helenu Sverrisdóttur sem Lykilmann þriðja leiks Hauka og Grindavíkur í undanúrslitum Domino's deildar kvenna. Helena var 3 stoðsendingum frá þrennunni, með 30 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar. Yfirburðamanneskja á vellinum í gærkvöldi, bæði í sókn og vörn og Grindavíkingar áttu engin svör við hennar leik.