spot_img
HomeFréttirLykilmaður leiksins: Jakob Sigurðarson

Lykilmaður leiksins: Jakob Sigurðarson

Seint koma sumir en koma þó. Karfan.is hefur valið Jakob Sigurðarson lykilmann leiks Íslands og Tyrklands í riðlakeppni B-riðils á Eurobasket 2015 í Berlín. Ísland tapaði leiknum 111-102 í framlengingu eftir frábæra spilamennsku allra í liðinu. Með því að velja Jakob umfram aðra er á engan hátt tekið af framlagi allra annarra leikmanna en valið var ákaflega erfitt. Jón Arnór spilaði frábærlega, Haukur einnig og Logi svo einhverjir séu nefndir. Skotsýning Jakobs í leiknum er samt eitthvað sem erfitt er að horfa framhjá við val sem þetta. 9/13 í skotum og brenndi ekki af skoti innan þriggja stiga línunnar sem átti stóran þátt í að halda Íslandi alltaf inni í leiknum. Frábær leikur hjá Jakobi og öllum hinum strákunum. 

 

Fréttir
- Auglýsing -