Lykilmaður fyrsta leiks Stjörnunnar og Njarðvíkur er að mati Karfan.is Haukur Helgi Pálsson í liði Njarðvíkur. Haukur spilaði frábærlega í seinni hálfleik og leiddi magnaðan varnarleik liðsins af mikilli kænsku. Haukur skoraði 20 stig, tók 8 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.
Grafík: Kristinn Geir Pálsson