Lykilmaður fyrsta leiks KR og Grindavíkur í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla er að mati Karfan.is Helgi Már Magnússon, leikmaður KR. Helgi skaraði fram úr í mjög jöfnu liði KR en hann var drjúgur á þeim kafla þar sem Grindvíkingar gerðu sig líklega til að minnka muninn. Helgi skoraði 19 stig, tók 3 fráköst og gaf 4 stoðsendingar þegar KR varði heimavöllinn í DHL höllinni.
Grafík: Kristinn Geir Pálsson