Lykilmaður fjórða leiks Keflavíkur og Tindastóls er að mati Karfan.is Helgi Rafn Viggósson, leikmaður Tindastóls. Helgi fór fyrir liði sínu eins og sannur fyrirliði með 11 stig, 18 fráköst og 3 varin skot. Helgi var frábær á báðum endum vallarins og er verðskuldaður Lykilmaður þessa leiks.