Lykilmaður fjórða leiks Hauka og Þórs í 8 liða úrslitum Domino's deildar karla er að mati Karfan.is Kári Jónsson, leikmaður Hauka. Kári kom inn að bekknum í leiknum og skoraði hvorki meira né minna en 30 stig, setti niður 6 þrista og tók 8 fráköst. Frábær leikur hjá þessum unga leikmanni.