Lykilmaður fjórða leiks Hauka og Grindavíkur í undanúrslitum Domino's deildar kvenna er að mati Karfan.is Helena Sverrisdóttir, leikmaður Hauka. Helena leiddi sitt lið til sigurs í mikilvægasta leik tímabilsins, en með honum tryggðu þær sér oddaleik á Ásvöllum. Hún skoraði 32 stig, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar í leiknum.