Lykilmaður annars leik KR og Grindavíkur í 8 liða úrslitum Domino's deildar karla er að mati Karfan.is Pavel Ermolinskij, leikmaður KR. Pavel stýrði jöfnu liði KR til sigurs í Mustad höllinni með þrennu innan klæða og lauk leik með 10 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar. Þar að auki varði hann 3 skot í leiknum.