Karfan.is hefur útnefnd Viðar Ágústsson sem Lykilmann annars leiks Hauka og Tindastóls í undanúrslitum Domino's deildar karla. Viðar hefur verið nokkurs konar ´dark horse´ í Tindastólsliðinu í allan vetur, frábær varnarmaður og sterkur frákastari. Í gærkvöldi bætti hann við stigaskorun þegar menn eins og Lewis voru ekki að finna taktinn á móti sterkri Haukavörninni.