spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaLykilleikmaður háskólameistara LSU til Grindavíkur

Lykilleikmaður háskólameistara LSU til Grindavíkur

Grindavík hefur samið við Alexis Moris fyrir komandi leiktíð í Bónus deild kvenna.

Alexis er 25 ára 175 cm bandarískur bakvörður sem á að baki gífurlega farsælan háskólaferil með LSU, þar sem þær meðal annars unnu meistaratitilinn á síðasta ári, en þar var hún einn af lykilleikmönnum liðsins. Í nýliðavali WNBA deildarinnar var Alexis svo valin með 22. valrétti af Connecticut Sun. Þá hefur hún einnig leikið fyrir sýningarliðið Harlem Globetrotters síðan hún lauk háskólaferil sínum.

Fréttir
- Auglýsing -