Lykilleikmaður 15. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Tindastóls, Viðar Ágústsson. Á 25 mínútum spiluðum í glæsilegum sigri á toppliði Njarðvíkur skilaði Viðar 10 stigum, 5 fráköstum og stolnum bolta. Þá var Viðar sá leikmaður Tindastóls sem liðinu gekk best með á vellinum, en í eins stigs sigri vann liðið þær mínútur sem hann spilaði með tólf stigum.
Aðrir tilnefndir voru leikmaður ÍR, Kevin Capers, leikmaður Þórs, Kinu Rochford og leikmaður Stjörnunnar, Brandon Rozzell.
Lykilleikmaður 15. umferðar Dominos deildar karla? #Korfubolti
— Karfan (@Karfan_is) January 27, 2019