Lykilleikmaður 19. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Njarðvíkur Selena Lott.
Í nokkuð kaflaskiptum sigurleik Njarðvíkur gegn Grindavík í Ljónagryfjunni var Selena það sem skildi á milli liðanna. Á rétt tæpum 36 mínútum spiluðum skilaði hún 26 stigum, 13 fráköstum, 6 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá fiskaði hún 8 villur á Grindavík í leiknum og var með 28 framlagsstig fyrir frammistöðuna. Mikilvægast kannski var að hún barðist fyrir sóknarfrákasti, fékk villu og setti tvö víti niður til þess að koma Njarðvík yfir, 68-67, þegar innan við sekúnda var eftir af leiknum.
Lykilleikmenn
- umferð – Madison Anne Sutton / Þór Akureyri
- umferð – Raquel Laneiro / Fjölnir
- umferð – Emile Hesseldal / Njarðvík
- umferð – Denia Davis Stewart / Stjarnan
- umferð – Emilie Hesseldal / Njarðvík
- umferð – Lore Devos / Þór Akureyri
- umferð – Madison Anne Sutton / Þór Akureyri
- umferð – Kolbrún María Ármannsdóttir / Stjarnan
- umferð – Brooklyn Pannell / Breiðablik
- umferð – Denia Davis Stewart / Stjarnan
- umferð – Daniela Wallen / Keflavík
- umferð – Lore Devos / Þór Akureyri
- umferð – Lore Devos / Þór Akureyri
- umferð – Shawnta Grenetta Shaw / Snæfell
- umferð – Jana Falsdóttir / Njarðvík
- umferð – Shawnta Grenetta Shaw / Snæfell
- umferð – Sarah Sofie Mortensen / Grindavík
- umferð – Keira Robinson / Haukar
- umferð – Selena Lott / Njarðvík