Lykilleikmaður 21. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur Sara Rún Hinriksdóttir.
Í gífurlega spennandi sigurleik gegn Njarðvík í Ljónagryfjunni sem tryggði Keflavík deildarmeistaratitilinn var Sara Rún besti leikmaður vallarins. Á tæpum 32 mínútum spiluðum skilaði hún 16 stigum, 8 fráköstum, 7 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá var hún nokkuð skilvirk, með 58% skotnýtingu fyrir innan þriggja stiga línuna, 4 fiskaðar villur og 21 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
Lykilleikmenn
- umferð – Madison Anne Sutton / Þór Akureyri
- umferð – Raquel Laneiro / Fjölnir
- umferð – Emile Hesseldal / Njarðvík
- umferð – Denia Davis Stewart / Stjarnan
- umferð – Emilie Hesseldal / Njarðvík
- umferð – Lore Devos / Þór Akureyri
- umferð – Madison Anne Sutton / Þór Akureyri
- umferð – Kolbrún María Ármannsdóttir / Stjarnan
- umferð – Brooklyn Pannell / Breiðablik
- umferð – Denia Davis Stewart / Stjarnan
- umferð – Daniela Wallen / Keflavík
- umferð – Lore Devos / Þór Akureyri
- umferð – Lore Devos / Þór Akureyri
- umferð – Shawnta Grenetta Shaw / Snæfell
- umferð – Jana Falsdóttir / Njarðvík
- umferð – Shawnta Grenetta Shaw / Snæfell
- umferð – Sarah Sofie Mortensen / Grindavík
- umferð – Keira Robinson / Haukar
- umferð – Selena Lott / Njarðvík
- umferð – Eve Braslis / Grindavík
- umferð – Sara Rún Hinriksdóttir