Lykilleikmaður þriðju umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Keflavíkur, Michael Craion. Á aðeins 21 mínútu spilaðri í risa sigri Keflavíkur á Grindavík skilaði Craion 22 stigum á 83% skotnýtingu, þá bætti hann við 4 fráköstum, 3 stoðsendingum og 6 stolnum boltum.
Aðrir tilnefndir voru leikmaður Stjörnunnar, Ægir Þór Steinarsson, leikmaður Tindastóls, Urald King og leikmaður KR Björn Kristjánsson.
Lykilleikmaður 3. umferðar Dominos deildar karla? #korfubolti
— Karfan (@Karfan_is) October 19, 2018