spot_img

Lykill: Logi Gunnarsson

Lykilleikmaður fyrstu umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Njarðvíkur, Logi Gunnarsson. Í góðum sigri hans manna í grannaglímunni gegn Keflavík, skoraði Logi 15 stig, tók 4 fráköst og gaf 2 stoðsendingar á 24 mínútum spiluðum. Þá var hann með 100% nýtingu úr djúpinu, setti öll fjögur þriggja stiga skot sín í leiknum, tvö þeirra þegar mest var undir í lok leiks.

 

Aðrir tilnefndir voru leikmaður KR, Julian Boyd, leikmaður Hauka, Marquese Oliver og leikmaður Stjörnunnar, Hlynur Bæringsson.

 

Fréttir
- Auglýsing -