Lykilleikmaður 8. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Vals Kristófer Acox.
Í sterkum sigri Valsmanna á Íslandsmeisturum Þórs var Kristófer besti leikmaður vallarins. Á rúmum 33 mínútum spiluðum skilaði hann 18 stigum, 14 fráköstum, stoðsendingu og vann lið hans þær mínútur sem hann spilaði með 16 stigum. Þá var hann einkar skilvirkur í leiknum, tapaði aðeins einum bolta og var með 82% skotnýtingu, en hann fékk 28 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
Lykilleikmenn:
- umferð – Shawn Derrick Glover / KR
- umferð – Hilmar Pétursson / Breiðablik
- umferð – Ronaldas Rutkauskas / Þór
- umferð – David Okeke / Keflavík
- umferð – Kristófer Acox / Valur
- umferð – Daniel Mortensen / Þór
- umferð – Sigvaldi Eggertsson / ÍR
- umferð – Kristófer Acox / Valur