spot_img

Lykill: Jeremy Smith

Lykilleikmaður 6. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Breiðabliks Jeremy Herbert Smith.

Í sigri Blika gegn Njarðvík í spennuleik í Smáranum, 91-88, var Jeremy besti leikmaður vallarins. Á tæpum 33 mínútum spiluðum skilaði hann 32 stigum, 7 fráköstum, 3 stoðsendingum, stolnum bolta og 2 vörðum skotum. Þá var hann nokkuð skilvirkur í leiknum, með 71% skotnýtingu og 36 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

  1. umferð – Everage Lee Richardson / Breiðablik
  2. umferð – Dedrick Deon Basile / Njarðvík
  3. umferð – Norbertas Giga / Haukar
  4. umferð – Dagur Kár Jónsson / KR
  5. umferð – Bragi Guðmundsson / Grindavík
  6. umferð – Jeremy Herbert Smith / Breiðablik
Fréttir
- Auglýsing -