Lykilleikmaður 19. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Stjörnunnar Hlynur Bæringsson.
Í gríðarlega sterkum framlengdum endurkomusigri Stjörnunnar gegn Grindavík í MGH var Hlynur besti leikmaður vallarins. Á 35 mínútum spiluðum skilaði hann 18 stigum, 14 fráköstum, 8 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Þá var hann einkar skilvirkur í leiknum, 60% fyrir utan þriggja stiga línuna, 100% af vítalínunni og með engan tapaðan bolta, en hann var með 38 framlagstig fyrir frammistöðuna.
Lykilleikmenn:
- umferð – Shawn Derrick Glover / KR
- umferð – Hilmar Pétursson / Breiðablik
- umferð – Ronaldas Rutkauskas / Þór
- umferð – David Okeke / Keflavík
- umferð – Kristófer Acox / Valur
- umferð – Daniel Mortensen / Þór
- umferð – Sigvaldi Eggertsson / ÍR
- umferð – Kristófer Acox / Valur
- umferð – Everage Lee Richardson / Breiðablik
- umferð – Hörður Axel Vilhjálmsson / Keflavík
- umferð – Robert Eugene Turner III / Stjarnan
- umferð – Julio de Assis / Vestri
- umferð – Igor Maric / ÍR
- umferð – Naor Sharon / Grindavík
- umferð – EC Matthews / Grindavík
- umferð – Everage Richardson / Breiðablik
- umferð – Daniel Mortensen / Þór
- umferð – Dani Koljanin / KR
- umferð – Hlynur Bæringsson / Stjarnan