Lykilleikmaður þriðju umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Njarðvíkur Emile Sofie Hesseldal.
Í gífurlega öruggum sigri Njarðvíkur gegn Haukum í Ljónagryfjunni var Emile besti leikmaður vallarins. Á sléttum 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði hún tröllatvennu 20 stigum, 20 fráköstum, 9 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.
Lykilleikmenn
- umferð – Madison Anne Sutton / Þór Akureyri
- umferð – Raquel Laneiro / Fjölnir
- umferð – Emile Hesseldal / Njarðvík