Lykilleikmaður 2. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Njarðvíkur Dedrick Basile.
Í nokkuð sterkum sigur Njarðvíkur gegn Hetti á Egilsstöðum var Dedrick besti leikmaður vallarins. Á um 39 mínútum spiluðum skilaði hann 29 stigum, 7 fráköstum, 9 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Þá fiskaði hann 9 villur í leiknum og var nokkuð skilvirkur, með 35 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
- umferð – Everage Lee Richardson / Breiðablik
- umferð – Dedrick Deon Basile / Njarðvík