Lykilleikmaður annarrar umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Stjörnunnar, Danielle Rodriguez. Í góðum sigri sinna kvenna á nýliðum KR, skoraði Rodriguez 38 stig, tók 15 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal 3 boltum á um 36 mínútum spiluðum.
Aðrar tilnefndar voru leikmaður Hauka, LeLe Hardy, leikmaður Skallagríms, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og leikmaður Snæfells, Kristen McCarthy.
Lykilleikmaður 2. umferðar Dominos deildar kvenna? #korfubolti
— Karfan (@Karfan_is) October 10, 2018