Lykilleikmaður 8. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Grindavíkur Danielle Rodriguez.
Í nokkuð sterkum 80-84 sigri þar sem Grindavík lyfti sér upp fyrir deildarmeistara Fjölnis í töflunni var Danielle besti leikmaður vallarins. Á tæpum 39 mínútum spiluðum skilaði hún 27 stigum, 4 fráköstum, 7 stoðsendingum, stolnum bolta og vörðu skoti. Þá var hún einnig nokkuð skilvirk í leiknum, með aðeins 3 tapaða bolta og 29 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
- umferð – Danielle Rodriguez / Grindavík
- umferð – Keira Robinson / Haukar
- umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
- umferð – Aliyah Collier / Njarðvík
- umferð – Kiana Johnson / Valur
- umferð – Eva Margrét Kristjánsdóttir / Haukar
- umferð – Kiana Johnson / Valur
- umferð – Danielle Rodriguez / Grindavík