spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaLykill: Daniel Mortensen

Lykill: Daniel Mortensen

Lykilleikmaður 17. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Þórs Daniel Mortensen.

Í frekar öruggum sigfurleik Íslandsmeistaranna gegn Breiðablik í Þorlákshöfn var Daniel besti leikmaður vallarins. Á tæpum 30 mínútum spiluðum skilaði hann 47 stigum, 13 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Þá var hann einstaklega skilvirkur í leiknum með 10 af 10 vítum, 5 af 9 fyrir utan þriggja stiga línuna og 16 af 21 í öllum skotum. Fyrir frammistöðuna fékk hann 55 framlagsstig, sem er það hæsta sem leikmaður hefur fengið fyrir einn leik það sem af er tímabili.

Lykilleikmenn:

  1. umferð – Shawn Derrick Glover / KR
  2. umferð – Hilmar Pétursson / Breiðablik
  3. umferð – Ronaldas Rutkauskas / Þór
  4. umferð – David Okeke / Keflavík
  5. umferð – Kristófer Acox / Valur
  6. umferð – Daniel Mortensen / Þór
  7. umferð – Sigvaldi Eggertsson / ÍR
  8. umferð – Kristófer Acox / Valur
  9. umferð – Everage Lee Richardson / Breiðablik
  10. umferð – Hörður Axel Vilhjálmsson / Keflavík
  11. umferð – Robert Eugene Turner III / Stjarnan
  12. umferð – Julio de Assis / Vestri
  13. umferð – Igor Maric / ÍR
  14. umferð – Naor Sharon / Grindavík
  15. umferð –
  16. umferð –
  17. umferð – Daniel Mortensen / Þór
Fréttir
- Auglýsing -