Lykilleikmaður 10. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Fjölnis Dagný Lísa Davíðsdóttir.
Í virkilega sterkum sigri Fjölnis á Keflavík í Blue Höllinni var Dagný Lísa besti leikmaður vallarins. Á tæpum 35 mínútum spiluðum skilaði hún 30 stigum, 13 fráköstum, 3 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Þá var hún einkar skilvirk í leiknum, tapaði boltanum í aðeins eitt skipti og var með 76% heildarskotnýtingu af vellinum, en hún var með 41 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
Lykilleikmenn:
- umferð – Ameryst Alston / Val
- umferð – Ameryst Alston / Val
- umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
- umferð – Anna Ingunn Svansdóttir / Keflavík
- umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
- umferð – Sanja Orozovic / Fjölnir
- umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
- umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
- umferð – Robbi Ryan / Grindavík
- umferð – Dagný Lísa Davíðsdóttir / Fjölnir