Lykilleikmaður 9. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Breiðabliks Clayton Riggs Ladine.
Í gífurlega öruggum sigurleik toppliðs Blika á Grindavík var Clayton besti leikmaður vallarins. Á tæpum 28 mínútum spiluðum skilaði hann 21 stigi, 4 fráköstum, 7 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Þá var skilvirkni hans til fyrirmyndar í leiknum, með 78% skotnýtingu, aðeins einn tapaðan bolta og 28 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
- umferð – Everage Lee Richardson / Breiðablik
- umferð – Dedrick Deon Basile / Njarðvík
- umferð – Norbertas Giga / Haukar
- umferð – Dagur Kár Jónsson / KR
- umferð – Bragi Guðmundsson / Grindavík
- umferð – Jeremy Herbert Smith / Breiðablik
- umferð – Taylor Maurice Johns / ÍR
- umferð – Dedrick Deon Basile / Njarðvík
- umferð – Clayton Riggs Ladine / Breiðablik