Lykilleikmaður 9. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Breiðabliks Brooklyn Pannell.
Í gífurlega mikilvægum fyrsta sigur vetrarins fyrir Breiðablik gegn Snæfell í Stykkishólmi var Brooklyn besti leikmaður vallarins. Hún lék allar 40 mínútur leiksins og skilaði á þeim 36 stigum, 9 fráköstum, 7 stoðsendingum og 6 stolnum boltum. Þá fiskaði hún einnig 9 villur á andstæðingana í leiknum og setti niður 14 af 17 skotum af gjafalínunni, en hún var í heild með 42 í framlag fyrir frammistöðuna.
Lykilleikmenn
- umferð – Madison Anne Sutton / Þór Akureyri
- umferð – Raquel Laneiro / Fjölnir
- umferð – Emile Hesseldal / Njarðvík
- umferð – Denia Davis Stewart / Stjarnan
- umferð – Emilie Hesseldal / Njarðvík
- umferð – Lore Devos / Þór Akureyri
- umferð – Madison Anne Sutton / Þór Akureyri
- umferð – Kolbrún María Ármannsdóttir / Stjarnan
- umferð – Brooklyn Pannell / Breiðablik