Lykilleikmaður 5. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Grindavíkur Bragi Guðmundsson.
Í gífurlega sterkum sigri Grindavíkur á Njarðvík í Ljónagryfjunni var Bragi hetjan. Á tæpum 35 mínútum spiluðum skilaði hann 19 stigum, 7 fráköstum, 5 stoðsendingum og vörðu skoti. Þá var hann nokkuð skilvirkur í leiknum, með 42% skotnýtingu úr djúpinu, 7 fiskaðar villur og 23 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
- umferð – Everage Lee Richardson / Breiðablik
- umferð – Dedrick Deon Basile / Njarðvík
- umferð – Norbertas Giga / Haukar
- umferð – Dagur Kár Jónsson / KR
- umferð – Bragi Guðmundsson / Grindavík