Lykilleikmaður 13. umferðar Bónus deildar kvenna var leikmaður Þórs Akureyri Amandine Justine Toi.
Í gífurlega sterkum sigur Þórs gegn Íslandsmeisturum Keflavíkur í Höllinni á Akureyri var Amandine besti leikmaður vallarins. Á rúmum 37 mínútum spiluðum skilaði hún 37 stigum, 2 fráköstum, 3 stoðsendingum og 6 stolnum boltum. Þá var hún einnig nokkuð skilvirk í leiknum, með 5 af 6 fyrir utan þriggja stiga línuna, tæpa 60% heildarskotnýtingu, 4 fiskaðar villur og 35 framlagsstig fyrir frammistöðuna.
Bónus deild kvenna
- umferð – Alyssa Cerino / Valur
- umferð – Abby Beeman / Hamar-Þór
- umferð – Abby Beeman / Hamar-Þór
- umferð – Emilie Sofie Hesseldal / Njarðvík
- umferð – Madison Sutton / Þór Akureyri
- umferð – Jasmine Dickey / Keflavík
- umferð – Deania Davis Stewart / Stjarnan
- umferð – Emilie Sofie Hesseldal / Njarðvík
- umferð – Madison Sutton / Þór Akureyri
- umferð – Jasmine Dickey / Keflavík
- umferð – Lore Devos / Haukar
- umferð – Abby Beeman / Hamar-Þór
- umferð – Amandine Justine Toi / Þór Akureyri