spot_img
HomeFréttirLutu í lægra haldi í fyrsta leik í Södertalje

Lutu í lægra haldi í fyrsta leik í Södertalje

Undir 20 ára lið kvenna mátti í kvöld þola tap fyrir Írlandi í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu í Södertalje, 80-67. Leikurinn er sá fyrsti af þremur, en næst leika þær á morgun kl. 15:30 að íslenskum tíma gegn heimakonum í Svíþjóð.

Atkvæðamest fyrir Ísland í leik kvöldsins var Jana Falsdóttir með 24 stig og 5 fráköst. Henni næst var Agnes María Svansdóttir með 14 stig og 3 stolna bolta.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -