Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao máttu þola tap gegn Unicaja í ACB deildinni á Spáni í dag, 81-86.
Tryggvi var næst framlagshæstur í liði Bilbao í leiknum með 6 stig, 7 fráköst, 3 stoðsendingar og 2 varin skot.
Bilbao eru eftir leikinn í 12. sæti deildarinnar með 6 sigra og 10 töp það sem af er deilodarkeppni.