spot_img
HomeFréttirLutu í lægra haldi gegn Litháen

Lutu í lægra haldi gegn Litháen

Undir 16 ára stúlknalið Íslands mátti þola tap gegn Litháen í næstsíðasta leik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins í Konya í Tyrklandi, 77-51. Liðið hefur því unnið einn og tapað tveimur þegar einn leikur er eftir.

Atkvæðamest í leiknum var Sara Logadóttir með 10 stig og 7 fráköst. Þá skilaði Tinna Jónasdóttir 5 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum.

Lokaleikur Íslands í riðlinum er gegn Bretlandi komandi þriðjudag 19. ágúst.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -