Lovísa Björt Henningsdóttir skrifaði undir samning hjá uppeldisfélagi sínu, Haukum fyrr í dag og mun leika með liðinu á komandi leiktíð. Lovísa hefur leikið með Marist skólanum í Bandaríkjunum síðustu fimm ár og snýr nú til baka.
Haukar sömdu við sjö leikmenn í dag fyrir komandi átök í Dominos deild kvenna. Liðið ætlar sér stóra hluti á komandi leiktíð og hafa nú endurheimt öfluga leikmenn.
Viðtal Körfunnar við Lovísu frá því fyrr í dag má finna hér að neðan: