spot_img
HomeFréttirLokaskot Jakobs geigaði og tímabilinu lokið

Lokaskot Jakobs geigaði og tímabilinu lokið

Boras lið Jakobs Sigurðarsonar eru komnir í sumarfrí eftir hetjulega baráttu gegn meisturum Södertalje í sænsku úrvalsdeildinni. Boras tapaði leiknum í gærkvöldi með 73 stigum gegn 71 en þetta var 5 leikur liðana og endaði serían 4:1 Södertalje í vil.  Boras byrjaði leikinn af miklum krafti og leiddu 18:10 eftir fyrsta fjórðung og í hálfleik var staðan 30: 32 Boras í vil. En það var á loka kaflanum að Södertalje tók forystuna en okkar maður "Ísmaðurinn" átti síðasta skot leiksins. Þegar 2 sekúndur voru til loka leiks átti Boras innkast sem endaði í höndunum á Jakob en skot hans var erfitt og fór ekki í. 

 

"Við áttum ekkert leikhlé eftir og þetta gerðist allt mjög hratt. 2 sekúndur eftir og innkast undir þeirra körfu. En svona fór þetta í þetta skiptið." sagði Jakob eftir leik í gær. 

Fréttir
- Auglýsing -