Undir 18 ára lið drengja leikur þessa dagana á Evrópumóti í Skopje í Makedóníu. Liðið tapaði fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu gegn Makedóníu, Tékklandi, Hollandi, áður en þeir unnu Lúxemborg í gær. Klukkan 19:00 í dag mætir Ísland svo Ísrael í lokaleik riðlakeppninnar.
Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu hér að neðan, en annars eru allar upplýsingar um mótið og lifandi tölfræði að finna á heimasíðu keppninnar hér.
Þá munu fréttir af mótinu vera á Körfunni.