spot_img
HomeFréttirLogi stigahæstur í tapleik

Logi stigahæstur í tapleik

9:46

{mosimage}

Það hvorki gengur né rekur hjá ToPo Helsinki (14-13) liði Loga Gunnarssonar nú í janúar. Í gær heimsótti liðið Porvoon Tarmo og tapaði 4 leiknum af 5 það sem af er ári, nú 98-80.

Logi átti þó ágætan leik og var stigahæstur með 24 stig. Leikmannahópur ToPo er frekar þunnur þessa dagana og voru einungis 9 leikmenn með liðinu í gær en eins og kunnugt er sendu þeir þrjá af erlendu leikmönnum sínum heim fyrir jól en hafa fengið 2 nýja í staðinn.

[email protected]

Mynd: Tuomas Venhola

Fréttir
- Auglýsing -