spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaLögðu Stjörnuna í Ólafssal

Lögðu Stjörnuna í Ólafssal

Haukar höfðu betur gegn Stjörnunni í æfingaleik í Ólafsal í gær, 80-66, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir deildarkeppni Bónus deildar kvenna sem rúllar af stað um næstu mánaðarmót.

Stigahæst fyrir Stjörnuna í leiknum var Kolbrún María Ármannsdóttir með 26 stig. Henni næstar voru Denia Davis Stewart með 25 stig og Bára Björk Ólafsdóttir með 5 stig.

Fyrir heimakonur í Haukum var það Lore Devos sem var stigahæst með 18 stig. Þá skiluðu Tinna Guðrún Alexandersdóttir 16 stigum og Diamond Battles var með 15 stig.

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -