spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaLögðu nýliðana fyrir norðan

Lögðu nýliðana fyrir norðan

Þór og Hamar/Þór mættust í æfingaleik á Akureyri í dag og höfðu heimakonur betur, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir komandi tímabil í Bónus deild kvenna. Mikið jafnræði var á með liðinum lengi framan af leik, en fyrir lokaleikhlutann munaði aðeins 5 stigum á þeim heimakonum í vil. Í þeim fjórða náðu þær svo góðum tökum á leiknum og var sigur þeirra öruggur að lokum, 75-57.

Stigahæst í liði heimakvenna í leiknum var Hrefna Ottósdóttir með 18 stig. Henni næst var Amandine Toi með 16 stig. Fyrir gestina úr Hamar/Þór var það Abby Beeman sem var stigahæst með 17 stig og Teresa Da Silva bætti við 11 stigum.

Tölfræði leiks

Myndasafn (Palli Jóh)

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -