Höttur frá Egilsstöðum tók á móti Keflavík í MVA-höllinni á Egilsstöðum í kvöld. Eftir sveiflukenndan leik var jafnt á öllum tölum eftir venjulegan leiktíma, 103-103, og því þurfti að framlengja.
Í framlengingunni voru það heimamenn sem höfðu yfirhöndina og unnu að lokum fimm stiga sigur, 120-115.
Mccauley Courvoisier var stigahæstur Hattar með 28 stig, en hjá gestunum skoraði Wendell Green 32 stig.